Jæja, má til með að blogga..
Hélt í gær matarboð, en ég
ásamt Margréti buðum Kalla og Karó í mat... og auðvitað var það ég
sem sá um alla eldamennskuna ....
Hérna er s.s mataruppskrift fyrir ykkur strákar sem svipað og ég
eruð "Rookiear" í eldhúsinu!!
Forréttur #1
Rækjur, ítalskt salat, kokteilsósa, papríka
- klippið eða skerið salatið og látið í botnin
á glasinu, ofan á það er svo látið kokteilsósu (ekki
mikið bara covera salatið) rækjurnar (ófrosnar auðvitað
)
settar ofaná það.. svona ca. 12-15 stykki.. síðan er
kokteilsósa látin ofaná sem "topping" og í hana stungið papríku
sem búið er að skera í litla bita.. klippt eða skorið
salat látið aðeins ofaná allt saman til að skreyta
Útkoman :
Mjög gott... fær bragðlaukana af stað !!
Forréttur #2
Graflax, graflaxsósa, ristað brauð
- Mjög einfalt að gera... setja graflaxinn á disk, sósan við
hliðiná (eða í skál á mitt borð, ristað brauð á diskinn.....
Útkoman :

-mjög gott... mæli með þessu
Aðalrétturinn :
Ítalskt salat, cesar salat (í pokunum), gúrka, papríka
-rauð-gul-græn, tómatar, beikon, kjúklingur, hvítlaukssósa
(e.finnsson eða álíka)
- mixið ítalska og cesar salatinu á diskinn, skerið gúrkuna í
hæfilega báta...svipað og tómatana, skerið papríkuna niður..ekki of
lítið samt og hendið öllu á diskinn... þetta gerir matinn geðveikt
flottan því það er svo mikill litur í þessu!! Skerið beikonið í
helming og smellið á pönnuna...svona ca 8 helminga á hvern disk!
Kjúllinn er skorið langa bita því þeir verða látnir á diskinn
...uuuuuhmmm... svona svipað og undirstöðurnar á indjána tjöldum
eru
.... kryddið kjúllan með kjúllakryddi og látið liggja á
pönnunni í olíunni í smá tíma til að hafa hann djúsí!! Mikilvægast
er að kjúllinn sé góður.. því þegar þú ert búnað snúa honum skaltu
skera í stærsta bitann og ath hvort hann sé eldaður í gegn...
skerðu líka í stóran bita sem er út við endann...smellið þessu svo
á diskinn.... með þessu er hvítlauksbrauð... -brauð smurt með
smjörði, kryddað með hvítlaukskryddi og ostur látinn yfir.. skorið
síðan horn í horn... 2-3 helmingar með hverjum disk
útkoman :

Aðalrétturinn bara getur ekki klikkað... sérstaklega þar sem
þetta er alveg jafn gott kalt... þannig að strákar.. þetta er
geðveikt gott og klikkar ekki.. !! Á þetta er síðan látin
hvítlaukssósan...en hún er ekki komin á matinn hérna !
Djonson kokkur kveður !!!!
- veit ekki afhverju.. bara ákvað að taka myndir af þessu í gær
og blogga um þetta í dag... þarf ekkert að taka það fram að
hvítlauksbrauðið brann hrikalega hjá mér og þurfti ég því að gera
nýtt og rak gestina í sófann í smá tíma
... kemur fyrir...
Klárlega efst á listanum á að vera.. látið vínið í kæli og
bjórinn...... en eftir svona meistaratakta á kokkurinn klárlega
skilið THULE .... Drukkum hvítvín með þessu öllu... ásamt bjór
auðvitað